Skvizan í Árósum !

10.10.2006 20:45:11 / Lára

Hætt Hér InnI !!

FRÁ OG MEÐ DEGINUM Í DAG ÞÁ BLOGGA ÉG FRAMVEGIS Á

www.danskastelpan.bloggar.is

Þakka fyrir áhugan á þessu bloggi og vona að þú "lesandi" góður haldir áfram að fylgjast með mér á nýju og betra bloggsíðu :)

Síðan er ekki fullbúin en hún er í vinnslu ;)

Kveðja frá DönskuStelpunni......


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 18:58:30 / Lára

Jeg er stille og rolig iaften :)

Nú er ég komin með nóg af djammi.  Frá og með núna ætla ég bara að djamma þegar það er eitthvað sérstakt að gerast.  Er ekki að höndla þessa þynnkudaga - ég verð alltaf svo mikið veik.  Og það er bara ekki gott fyrir mig.  Ég er heldur ekki að nenna þessu.  Mér finnst orðið ekkert spennandi að djamma (sérstaklega ef það er ekkert spes að gerast).  

Annars fór ég í partý í gær á kolleginu.  Þegar ég var búin að vera þar inni í nokkrar mínútur þá kemur til mín strákur, stoppar fyrir framan mig og starir á mig.  Ég var ekki að skilja afhverju hann starði svona rosalega á mig og sagði ekki neitt.  Svo ALLT Í EINU rann það upp fyrir mér hver hann væri.  Þá var þetta annar strákurinn sem hjálpaði mér seinustu helgi.  Enn þá var ég einmitt að djamma og drakk því miður einum of mikið af skotum sem endaði með því að ég settist út og kastaði upp.  Svo komu til mín tveir danskir strákar og sögðust vilja fylgja mér heim (sem þeir fengu að gera).  Já...danskir strákar eru æði!!  Ég þakkaði fyrir mig og spurði forvitnislega afhverju þeir vildu hjálpa mér.  En Tony (þessi sem ég hitti í gær) sagði það vera vegna kuldans sem var. 

Ég gerði tilraun í nótt að prófa munntóbak.  Sem er ekki í pokum.  Það gekk ekki vel, það var einum of flókið fyrir mig að troða þessu undir vörina með hjálp tungunnar og ná að bleyta í leiðinni.  Þannig að það endaði með því að allt tóbakið brotnaði niður og fór um allan munn.  HeHe. 

Í töluðum orðum er landsleikur á milli Danmerkur og N-Írlands.  Staðan er 0-0 einsog er.  Ég er svona að horfa á leikinn með öðru auganu en er að bíða eftir kvikmynd sem byrjar uppúr 21. 

Seinna í þessum mánuði verða 8 mánuðir síðan ég flutti til Danmerkur.  Það er ekkert smá sem tíminn hefur liðið.  Og ekki get ég sagt að ég sjái eftir því að hafa flutt.  Ég þurfti á þessu að halda - að komast í burtu frá Íslandi. Gott fyrir sjálfa mig og aðra í kringum mig.  Byrja nýtt líf hér í Danaveldi.  Þó það séu bara 8 mánuðir síðan ég flutti þá pæli ég oft í því hvað ég ætla að vera lengi.  Það verða minnstakosti cirka 3 ár vegna námsins.  En mig langar til að vera hér LENGI.  Ef allt gengur vel og ég fæ vinnu við hæfi þá langar mig til að vera hér úti í nokkur ár.  Jafnvel bara í nokkra áratugi. 

Jæja...Þið ykkar sem ætlið að djamma.... EKKI drekka fyrir mig.  En góða skemmtun!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 19:21:16 / Lára

VinnuVikan Hálfnuð :)

Þá var ég að enda við að borða tyrkneskan kvöldmat.   Komst að því að ég var að borða sérstakan pastarétt sem er borðaður kannski einu sinni í mánuði í Tyrklandi.  Hann bragðaðist bara okay.  Í fyrsta lagi smakkaðist þetta einsog pasta enn leit ekki út fyrir að vera pasta - bæði var liturinn allt annar en maður er vanur og útlitið aðeins öðruvísi.  Svo setti ég einhverskonar hvítlaukssósu á og líka eitthvað tómatssósu mauk.  Sem gerði réttinn betri.  Ég smakkaði líka á fylltum pönnukökum sem ég var ekkert smá ánægð með.  :haha:

Eitthvað þurfti ég að drekka með þessu svo ég opnaði einn lítinn bjór - oj..ég tók einn sopa og hellti svo honum öllum niður.  Djöfull var hann vondur.  Þannig að ég hellti mér eplasafa í glas og ekki var það skárra.  Þannig að allt í einu fékk ég nóg af þessum mat, hámaði honum í mig og stóð upp frá borðinu.  Og þakkaði fyrir mig. 

Annars byrjaði ég í praktik í gær.  Og það er frábært hvað sumt eldra fólk er yndislegt.  Sko..það er alveg óþarfi að hætta að hafa húmór þó svo að það sé að nálgast nírætt:)  Eitt fannst mér athyglisvert þegar Susanne (konan sem ég fylgdi með) bjó til morgunverð fyrir eina dömuna en það var rúgbrauð m/smjöri og svo stráði hún sykri ofan á.  *Hvernig ætli það bragðist?*

Annars er það Ivan (þetta er KK)  sem ég mun fylgja mest með.  Hann er minn "praktikvejleder".  En ég mun líka fylgja öðrum konum svona til að sjá allt sem fylgir mínum vinnustað.  

Æi...Já...Best að hætta núna....Best að fara sauma... Hej Hej


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 17:37:47 / Lára

Nýr Mánuður...

Hvurslags er þetta eiginlega.....það er kominn Október mánuður.  Ógeðslega líður tíminn hratt þessa dagana.  Sem er líka bara frábært finnst mér.  Það er alls ekki langt í að nýtt ár byrji. 

Annars djammaði ég á laugardagskvöldið...... og skemmti ég mér bara vel.  Það er ekkert meira um það að segja;) Það er alveg óþarfi að fara útí aðalatriðin..HóstHóst!! 

Í morgun byrjaði ég í verklega náminu (praktik).  Mætti kl.08:30 og var búin rúmlega klukkutíma seinna.  Það eru verkföll í gangi - allir sem vinna við að passa börn hafa verið í verkfalli seinstu tvær vikur og núna hafa þau sem vinna á elliheimilum og við heimahjúkrun byrjað verkföll líka.  Svo staðan er alls ekki góð hér í Aarhus og hvað þá um allt land.  Ég mæti á morgun kl.08:00 og ath.hvernig staðan verður þá.  Annars er ég mjög heppin með staðsetningu að mínu mati... vinnustaðurinn minn liggur svona 5mín.frá DownTown.  Þar sem lestarstöðin liggur t.d og allir strætóar stoppa.  Svo það er ekkert vesen fyrir mig að komast á leiðarenda. 

Æi....hef ekkert meira að segja núna.... ætla hlunkast niður og byrja að sauma...horfa á Grey´s hvide verden með öðru auganu....


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 21:11:52 / Lára

Staðan á mér núna !!

Einhverra hluta vegna finnst mér kominn tími til að blogga.  Enn samt er ég varla að nenna því, veit ekki alveg hvað það ætti að vera í þetta skiptið....... ég get svo sem sagt ykkur það að ég smakkaði á tyrkneskum dessert fyrr í kvöld.  Reyndar er skammturinn minn ekki alveg búinn og mun væntanlega ekki klára hann.  Ekki það að rétturinn sé vondur en maður fær nóg eftir nokkra bita.  Ég var eitthvað að reyna að spyrja tyrkjann hvað þetta kallast - ég held við vorum ekki að skilja hvort annað.  En ég gat lesið það á umbúðunum að þetta er einhverskonar réttur aðallega úr hveiti.  Svo er rétturinn settur í sírópsvökva og látinn liggja þar í einhvern tíma.  Það er erfitt að lýsa réttinum en þið gætuð ímyndað ykkur að þetta séu MiniMiniMiniMiniMini núðlur.  Alltaf gaman að smakka eitthvað nýtt og það frá annarri þjóð. :D

Annars er bara ágætt í skólanum.  Ég á bara eftir 3 daga áður en ég fæ 2ja vikna pásu frá honum en ég mun vera í praktik í 2vikur.  Þessi praktik kallast IntroPraktik en þetta er aðallega gert fyrir þau sem velja að fara í þetta nám og hafa t.d. aldrei stigið fæti inn á elliheimili/heimahjúkrun og vita ekki út á hvað vinnan þar inni gengur útá.  Það er alveg til í því að margir ákveða það í þessarri IntroPraktik að þetta sé ekkert sem þau gætu svo hugsað sér að vinna við.  Það eru sko ekki allir sem gætu hugsað sér að skeina eldra fólki, baða, mata, tala við þau, þrífa fyrir þau, versla í matinn eða hvað sem það nú er. 

En eftir IntroPraktikina þá mun ég vera í skólanum fram til jóla og byrja svo í Praktik 1 í byrjun janúar 2007.  Og mun vera í henni fram til 9.apríl.  Þá kem ég aftur í skólann frá 10.apríl til 14.júní.  Praktik 2 byrjar 15.júní til 19.október (sumarfríið mitt leynist þarna inni).  Lokasyrpan í skólanum frá 20.október til 9.nóvember en þá mun ég útskrifasts sem Social-og Sundhedshjælper :)

Stundaskráin fyrir morgundaginn hljóðar svona:  SUNDHEDSFAG frá 8:20-11:00.  Frá 11:00-12:00 verður ratleikur sem allur skólinn tekur þátt í (hver bekkur er eitt lið), þetta er einhver skemmtun bara.  Hádegismatur frá 12:00-12:25 (er venjulega alltaf frá 11:55).  Social- og Samfundsfag frá 12:25-13:55.   Þá verður þessi skóladagur búinn.  :P

Annars ætlum við vinkonurnar að skella okkur á djammið á laugardagskvöldið.  Hérna á barnum á kolleginu verður STRIPPdans - fyrst mun KK fækka fötum fyrir okkur kellurnar og hommana en svo mun KvK gera það sama fyrir karlana og okkur stelpurnar:)  Já..mér finnst bara gaman að sjá KvK fækka fötum.  Það er ekki ákveðið hvort við munum skella okkur í bæinn svo þegar líða fer á nóttina því það er sko vel hægt að skemmta sér hérna á kolleginu.  Miðað við helgina sem var að líða :)

Best að hætta í kvöld.  Þakka fyrir lesninguna.  Hvernig væri nú að commenta við þessa færslu - langar að vita hverjir lesa bloggið mitt. 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 12:57:44 / Lára

....

Þá er ég búin að panta mér flugfar til Íslands í jólafríinu mínu.  Kem á þorláksmessu um miðjan dag og fer heim aftur snemma á þriðjudeginum 2. Janúar 2007.  Það verður eitthvað skrítið við þessi jól en Sveina og co. verða stödd á Kanaríeyjum yfir jól&áramót.  En planið hjá mér var að fara líka og hitta þau en ferðin mundi kosta mig svoldinn pening sem ég á ekki.  Svo verður amma í Englandi hja móðursystur minni og önnur móðursystir mín mun svo fara þangað yfir áramótin.  Svo eitthvað verður þetta skrítin jól.   

Í gærkvöldi var sameiginlegur matur einosg er alltaf á miðvikudögum.  Ég ákvað að taka ekki þátt í gær - var ekki að nenna því.  Það er ekkert gaman að reyna skemmta sér og öðrum ef maður er ekki í nógu góðu stuði.  En í staðinn skellti ég mér á smá æfingu með Lindu sem er nýflutt á kollegiet.  Annars var franskur matur í boði - ég hefði betur átt að taka þátt því ég held að maturinn hafði bragðast mjög vel.  Ekki hef ég smakkað franskan mat áður en þetta leit ekkert smá vel út.  Enn kannski á maður ekki að láta útlitið blekkja sig;)  Hingað til hefur gleðskapurinn endað uppúr miðnætti en ég heyrði nokkur mikil læti kl.03:30 í nótt.   Ég var stödd í eldhúsinu þegar ég heyrði að "yfirmaðurinn" tók til orða og spurði hver vildi vera svo góður og elda næst - NeiNei... þá var einhver sem benti á mig og ég ákvað að taka það að mér.  Ég lofaði þeim ekki íslenskum mat - en mat fá þau.  Ætla rétt að vona mín vegna að ég fái hjálp frá einhverjum íslenskum til að elda.  Já..ég kann þannig sé ekki að elda neitt að ráði.  Og hvað þá fyrir allavegana 10manns !! 

Ég er ein af þeim sem finnst BEST  þegar það standa allar upplýsingar á umbúðunum hvernig á að elda vöruna.  LoL!  En þó hef ég tekið eftir því að það er ekki alltaf hægt að treysta á upplýsingarnar.  Svoldið asnalegt að prenta einhverjar upplýsingar á umbúðirnar (fyrir okkur sem kunnun ekki nógu vel að elda), svo förum við alveg eftir aðferðinni enn neinei... maturinn er sko langt í frá að vera tilbúinn.  Hvað er málið með það ??? 

Annars hef ég undanfarna daga verið að fylgjast með meðlegjendum mínum.  Átti t.d. langt og gott spjall við tyrkjann um helgina en við tölum mikið saman.  Ætli hann sé ekki að nálgast fertugt.  Ég er allavega búin að fræðast mikið um líf hans í hans heimalandi og hvernig ýmsir hlutir virka þar.  Svo er ég líka búin að komast að því hvernig ungverjinn sem deilir ísskáp með mér borðar túnfisk.  Hann skellir túnfiskinum úr dósinni á disk, setur andlitið nánast ofan í fiskinn og notar fingurnar til að mata sig.  Ekki falleg sjón það !!  Þessi frá Belgíu kann víst lítið á bakaraofna því hann var ekki alveg að skilja leiðbeiningarnar á umbúðunum sínum - þar var mynd af ofni og átti að stilla á yfir og undirhita og svo ákveðinn hita audda.  Hann var búinn að opna lokið og ath. hvort það væri eins mynd á lokinu og var á umbúðunum.  Ég kennd honum á þetta;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 19:19:13 / Lára

19. SeptemBer Kl. 21:19

Þá er það nemandinn sem skrifar.  Jújú..skólinn byrjaði í gær kl.09.  Ég lenti í 22ja manna bekk sem er blandaður nokkrum þjóðernum einsog Færeyjum, Íslandi, Marakkó, Rússlandi, Georgíu, LibanonSómalíu, Skotlandi og Danmörku.  Það sem komið er get ég ekki annað en sagt að ég sé bara ánægð með bekkinn minn.  Yngsti í mínum bekk er 18ára og elsti er 45ára. Það eru 3 strákar.  Flestir eru á svipuðum aldri og ég.   Fyrstu tvær vikurnar fara nú bara aðallega í að kynna okkur námsefnið og margt sem viðkemur skólanum. 

Ég tók forskot á sæluna í gær og hjólaði í skólann enda ekki löng leið.  Rúmir 7km.  En allavegana þá hef ég ekki hjólað almennilega í nokkra mánuði svo það var meira en að segja það að stíga uppá hjólið og koma mér á leiðarenda.  Fyrsti kaflinn er að hjóla upp smá brekku - ég var varla að meika brekkuna (steig af hjólinu þegar ég var komin nánast upp alla brekkuna).  Bara eftir þennan stutta og erfiða kafla og ekki einu sinni hálfnuð var ég orðin ágætlega sveitt og þreytt.  Svona er æfingin góð - NOT !!  Það tók mig 30mínútur að hjóla..... eftir nokkur skipti verð ég komin niður í 20mín.  Sjáiði til !!

Það sem ég get varla beðið eftir að haustið byrjar almennilega og hvað þá veturinn.  Jájá.... það er núna 19. september og hitinn er ennþá um og yfir 20 gráðurnar.  Það er meira segja spáð um 22ja stiga hita í lok vikunnar.  Langar að byrja að nota ullarpeysuna mína, húfuna mína, vettlingana mína.  Og getað hjólað án þess að svitna eftir fyrstu 5mínúturnar. 

Ætlaði að skrifa meira en er að fá gest í einn eða tvo bjóra :)  Svo ég skrifa meira á morgun vonandi..... Hils frá Aarhus


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 21:01:44 / Lára

Mér Leiðist ÓgÓ Mikið !

Mér Leiðist.  Vill Einhver Hringja Í Mig Og Kjafta ?? Hs: 0045-8250 9476.  Nei, Væntanlega Ekki!!  Shit...þetta verður löng nótt - núna hefði verið gott að draga einhvern með mér á barinn hérna á kolleginu.  Ég er bara búin að sofa í allan dag og á örugglega ekki eftir að sofna á skikkanlegum tíma í nótt ef ég þekki mig rétt !!

Ég nenni ekki einu sinni að horfa á DvD eða spila einhverja leiki í tölvunni. Eina sem mig langar til að gera er að spjalla við einhvern. 

Æi..nenni nú ekki einu sinni að blogga.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 11:23:32 / Lára

Þetta Er Heimilið Mitt - Skýringar !!

Þegar ég fór fram í eldhús í hádeginu þá varð ég kjaftstopp.  Afhverju?? 

Mynd 1 & Mynd 2: Einsog fyrsta myndin sýnir þá er þetta ekki í fyrsta né seinasta sinn sem þessi miði er settur á svona hrúgu.  En því miður þá er þetta alltaf svona eftir einn ákveðinn hóp sem borðar alltaf saman.  Mig minnir að þau koma frá Portúgal og þau eru allavega alltaf 4 saman (ef ekki fleiri oft),  það mætti halda að þau skildu ekki ensku en þau gera það.  Og þau tala líka bara góða ensku.  Það tekur nú enga stund að vaska upp eftir sig hvað þá þegar þau eru nokkur saman.  En þau virðast ekki getað skilið þennan miða.  Eða þeim er bara alveg sama!!

Mynd 3:  Auðvitað eru alltaf einhverjir aðrir sem nenna ekki að vaska upp glös eftir sig og henda því bara frá sér.  Reglan er sú að ef þú nennir ekki að vaska strax upp eftir þig þá áttu að setja það í þína körfu í glugganum (sést ekki á mynd).  Aðallega til að hafa þetta sem snyrtilegast. 

Mynd 4:  Þetta er eldhúsborðið okkar.  

Mynd 5:  Svona lítur sameignilega stofan okkar út.  Og takið eftir..það er aðeins búið að taka til og þrífa. 

Herbergið mitt er beint á móti eldhúsborðinu.  Og inngangurinn til okkar er líka alveg við dyrnar mínar. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 14:15:06 / Lára

Það Má Líka Kommenta eða Skrifa í Gestabókina Mína !!

Í gær átti ég góðan og skemmtilegan dag.  Ég tók að mér að hjálpa Hrefnu vinkonu með stráka afmæli sem hún hélt fyrir Benjamín (sonur hennar 9ára) í www.legelandet.dk  . Það er best fyrir ykkur lesendur góðir að kíkja á síðuna og skoða myndirnar (Billeder) svo þið vitið um hvað ég er að tala.  Við byrjuðum á því að hjóla útí skóla og sækja allan skarann.  Með afmælisbarninu voru þetta þrettán strákar.  Svo fylgdu þeir okkur að leikjalandinu sem er bara rétt fyrir ofan okkar kollegie.   Strax og inn var komið hurfu strákarnir í allar áttir og við vissum varla af þeim.  Eftir að við gáfum strákunum að borða FRANSK HOTDOG og SVALA þá skelltum við okkur í MiniGolf.  ÓmæGod...það sem við hlógum og höfðu gaman af þessu.... leikurinn endaði í jafntefli þó svo að Hrefna átti góðan leik í byrjun því hún var 5-1 í byrjun. 

Eftir golfið fórum við í þythokkí og það var bara HARKA þar á ferð.  Við tókum nokkra leiki sem Hrefna hafði betur.  En ég gaf samt ekkert eftir, ég lét heyra vel í mér þegar ég skoraði eða náði ekki að verja.  Sjaldan sem ég hef svona læti. HeHeHe. :^)

Svo í lokin fórum við í öll hin skemmtitækin sem eru nú aðallega gert fyrir yngra mannfólkið en við fullorðnu máttum  sko alveg prófa líka:)  Þetta voru hoppukastalar, uppblásnar rennibrautir, kastali sem við gátum valið um nokkrar leiðir, aðeins erfiðari fyrir okkur að komast upp um götin og svo gátum við rennt okkur niður.  Þetta var bara gaman og mikill sviti sem fylgdi þessum degi. 

Um kvöldið kíkti ég aðeins út með Gerði sem býr líka á kolleginu mínu.  Við byrjuðum á því að fara á barinn á kollginu og þar var lala mikið af fólki.  Við vorum ekki alveg að nenna því að vera þarna svo við ákvöðum að kíkja í gleðskap hjá íslendingum sem eiga heima í 20mín ökuferð frá okkur.   Gerður keyrði þangað því hún ætlaði bara að rétt að fá sér 2 bjóra en ég ætlaði mér að drekka aðeins fleiri en hún.  Þó svo við ætluðum okkur ekkert að fara í bæinn.  En svo endaði það með því að hún drakk minn skammt og ég hætti að drekka fljótlega, varð allt í einu svo þreytt að ég hafði ekki lyst á áfengi.  En áður en það gerðist þá tókum við þátt í SingStar keppni, áttum skemmtilegar samræður og svona.  Þegar ég hætti að drekka og var næstum því búin að geispa yfir mig þá var mér afhendur drykkur sem ég var vinsamlegast beðin um að drekka.  Það var verið að reyna hressa mig upp. :haha:

Ég hressist aðeins við...fór útá svalir til þeirra og við sungum nokkur vel valin lög við undirleik gítars.  Og gerði mitt besta að drekka af drykknum mínum (er ekki vön að drekka Malibu í sprite).  En viti menn.....það kom af því að Gerður vildi fara heim svo ég keyrði okkur tilbaka.  Það var ágætt að ég drakk ekki meira en þetta. 

** Hvernig væri að taka þátt í skoðanakönnuninni minni - ég er nefnileg að fara sauma ávöxt í handklæði og vantar svo hjálp við að ákveða hver af þeim verður fyrstur.  Er sjálf svo óákveðin.  **

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 20:54:26 / Lára

Úrslit ..

ÞAÐ VORU 21 SEM TÓKU ÞÁTT Í ÞESSARRI SKOÐANAKÖNNUN - MIKIÐ ER ÉG FEGINN AÐ MINN FLOKKUR VANN EN ÞAÐ ER AUÐVITAÐ EFSTI FLOKKURINN.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 12:51:12 / Lára

Tvær Vikur Í Skólann :)

Þá er September kominn.....og haustið að byrja.  Það er svalt í dag í Árósum, vindur og alles.   Ég var að enda við að þrífa sameiginlega eldhúsið - var bara búin að fá nóg af þessu skítuga eldhúsi.  Enginn sem sagði mér að gera það sko - ég gerði það bara!!  Það tók nú sinn tíma að þrífa allar matarsletturnar af eldhúsborðunum, eldavélina, vaska upp skítugt leirtau og þurrka það svo, ryksuga gólfið.  Eldhúsið er ekki fullkomið hreint en það lítur miklu betur út en fyrir tveimur tímum síðan.  Það er aldrei að vita að ég klára það á morgun en það þyrfti að skúra það og henda öllum þessum fernum sem einhver vill ekki henda í ruslið.  :whut:

Reglurnar í þessu eldhúsi eru þannig t.d. að ef ég fæ mér að borða, og nota væntanlega eitthvað að leirtaui þá Á ég að þrífa það, þurrka og setja á sinn stað EÐA ef ég vil bíða með að ganga frá eftir mig þá set ég mitt notaða leirtau í ákveðna körfu merkta 3 (sem er herbergisnr.mitt).   Ennn auðvitað er alltaf einhverjir sem nenna aldrei að fara eftir reglum, sumir hreinlega þrífa aldrei eftir sig, aðrir þrífa eftir sig en skilja leirtauið eftir í þurrgrindinni, sumir passa sig á því að þrífa EKKI  eitthvað sem AÐRIR hafa notað.  Síðan ég flutti hingað inn hef ég tekið eftir óhreinu leirtaui sem greinilega enginn nennir að vaska upp svo ég þreif það áðan með mínu.  Í þeim töluðum orðum ákvað ég að taka eldhúsið aðeins í gegn.  Og má ég bara vera stolt af sjálfri mér:D

Það þyrfti sko sannarlega að taka sameiginlega stofuna í gegn líka.... ætli það endi ekki með því að ég geri það líka.... seinna í vikunni.  Ooohhh... sko á miðvikudaginn 6.sep þá mun Ísland keppa á móti DK í fótbolta.  Og væri ég sko til í að horfa á leikinn í beinni ennnn þá ætlar Rasmus á efri hæðinni að halda veislu.  Hann ætlar að elda mat og svo verður væntanlega bara drukkið og skemmt sér.  Okkur sem langar að taka þátt í gleðinni megum alveg bjóða gestum.  Samt ekki að kostnaðarlausu, við munum borga eitthvað í matnum. Sem er líka í góðu lagi!!  Enn nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að horfa á leikinn eða vera með í veislunni - er ekki kominn tími á að kynnast þessu útlendingapakki hérna.   HóstHóst!!  Jú....ætli það sé ekki best. 8) Ég vil ekki láta stimpla mig sem félagsskít hérna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 22:02:22 / Lára

Áiiiiiiiiiii..............

Það er aldeilis sem maður er flottur þessa dagana.  NOT !!!  Sko...á laugardaginn var þá byrjaði ég að fá illt í varirnar, hélt fyrst bara að ég væri að fá einhvern þvílíkan þurrk.  Og einhverja hluta vegna nennti ég ekki að fara og kaupa mér varasálva.  Ég var úti ALLAN daginn og sólin skein ALLAN tímann, hitinn var um 25gráður.

Allavegana þá hugsaði ég ekki mikið útí þetta fyrr en á mánudeginum þegar ég finn það að varirnar eru eitthvað meira en skrítnar.  Var ekki alveg viss hvort þetta væri bara svo mikill þurrkur eða hvort ég væri svo heppin að hafa fengið frunsur.  Þetta tók sinn tíma að birtast í endanlegri mynd!!

Ég veit vel hvernig frunsur líta út.... ég hef alltaf haft þennan vírus í mér síðan ég var lítil.  Fæ þær reglulega en þó alltaf bara eina litla eða eina risastóra.  NeiNei... ég er bara með heil 5 stykki.  3 á efri vörinni og 2 á neðri.  Og þær eru ekkert litlar sko.  

Jájá..það eru margar orsakir afhverju hægt er að fá frunsur en í þessu tilviki fékk ég þær vegna of mikils sólarljóss.  Það er það eina sem kemur til greina í þessu tilviki - http://www.doktor.is/Article.aspx?greinid=388  (hægt er að lesa um frunsur hér)

Í gærkvöldi versnuðu varirnar þvílíkt og átti ég erfitt með svefn í nótt - ekki gaman það.  Svo ég neyddist auðvitað til að fara í skoðunarferð og kaupa eitthvað við þessu.  Hérna rétt hjá mér er CityVest sem er svokallað verslunarhús.  Þangað var ég að fara í fyrsta sinn (vissi ekkert hvernig búðir væru þarna).  Fyrst fór ég inn í MATAS sem er bara snyrtivörubúð en það er einnig hægt að kaupa vörur sem fást í apótekum (en án lyfseðil).  Ég fann strax svona krem sem er ætlað á frunsur en ég spurðist fyrir hvort þær ættu eitthvað sterkara.  Afgreiðslukonurnar  bentu mér á að fara í apótekið því þær ættu örugglega meira úrval en þær.  (ég vissi ekki að það væri apótek þarna).  Þegar þangað var komið þá fann ég eina afgreiðslukonuna og spurði hana hvort hún ætti eitthvað gott krem fyrir mig - hún leitaði sér hjálpar hjá annarri konu og þær komust að þeirri niðurstöðu að ég ætti að leita hjálpar hjá lækni. 

Ég er reyndar ekki búin að fá lækni í Árósum svo þær bentu mér á læknastofu sem er í verslunarhúsinu og þeir ættu að geta hjálpað mér.  Þær voru nefnilega alveg vissar um að ég þyrfti eitthvað sterkara krem til að laga þessar frunsur.  Þangað fór ég, var komin þangað kl.12:40 og skilaboðin hjá ritaranum voru þau að þau koma aftur kl.13:00.  Þá var ekkert annað að gera en að bíða.  Þegar ég náði tali af ritaranum þá stóð líka læknir fyrir aftan hana og hann hlustaði á mig og þau sögðu bæði að ég gæti keypt kremið sem þau myndu ráðleggja mér án þess að hafa lyfseðil.  Takk fyrir pent!!  Þá var bara að skella sér niður aftur og kaupa kremið góða.  Og þetta þarf ég að bera á mig 5x á dag í 5-10daga. 

Hingað til hef ég aldrei kvartað yfir því að fá frunsu.  Þetta er ekkert skemmtilegt en alls ekki banvænt.  Þetta kemur og fer.  No problem!!  En þegar báðar varirnar þurfa að vera útataðar þá segji ég STOPP.  Allt er gott ef það er í hófi.  HóstHóst.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 16:20:17 / Lára

Bara 3 Dagar Eftir Af Ágúst Mánuði :)

Laugardagurinn frá morgni til kvölds var bara ÆÐISLEGUR.  En þá var sommerfest á kolleginu mínu.  Við Skvizurnar mættum á planið kl.10 en þá var boðið uppá morgunverð.  Eftir matinn hófust ýmsar keppnir - sumir tóku þátt, aðrir horfðu á, sumir drukku bjór, aðrir blönduðu geði við aðra.  Við aftur á móti horfðum á blak keppnina enda tóku yngstu íslendingarnir (6ára-10ára) þátt í mótinu.  Og við hvöttum okkar menn.  Okkur langaði líka að taka þátt í einhverju svo við skráðum okkur í fótbolta.  Nei, ekki þessi typical fótbolti þar sem maður hleypur um allann völl til að ná boltanum heldur einosg Fótboltaspil.  Völlurinn var bara uppblásinn, og við vorum 6 saman í liði - einn markvörður, tveir í vörn og þrír í sókn.  Allir voru bundnir fastir á sínum stað.  Ég var t.d. í vörn allan tímann og þegar ég reyndi að nálgast boltann þá komst ég takmarkað í báðar áttir enda bundinn.  Og ef hinn varnarmaðurinn elti ekki í sömu átt þá var það aðeins erfiðara. HeHe.  Þetta var bara gaman, mikil harka því það var ýmist sparkað í mig eða skotið boltanum beint á mig (og það fast).  Engar reglur varðandi hörku.  Sumir héldu manni föstum á meðan aðrir þorðu varla að snerta mig - misjafnt hvað danirnir eru kurteisir. 

Gleymi að nefna að veðrið var ÆÐISLEGT.  Sólin skein og hitinn var um 25 gráður. 

Eftir að keppninni lauk þá héldum við áfram að skemmta okkur saman úti - uppúr kl.17 fór ég heim og skellti mér í sturtu og gerði mig sæta fyrir seinni hlutann af veislunni.  En klukkan 19 byrjaði maturinn.  Svo var líka verðlauna afhending og liðið okkar ÍSLAND urðum í 3ja sæti.  Enginn af okkur átti von á því.  En það var auðvitað bara frábært.   Við sátum úti og skemmtum okkur þangað til það byrjaði að rigna en það passaði okkur að skella okkur á barinn.  En barnafólkið fór heim.  

Wow...þegar ég vaknaði á sunnudeginum var ég gjörsamlega búin á því.  Fyrir utan það að vera ógeðslega þunn þá var ég með þvílíkar harðsperrur í fótunum (ég er sko byrjuð að æfa) og þessi fótbolti hefur eitthvað tekið á - því ég átti mjög erfitt með gang.  Svo eru einhverjir marblettir hingað og þangað.   Er skárri í dag en mig verkjar ennþá. 

Jájá.... Skvizan er byrjuð að æfa með Hrefnu sinni.  Ég fór 3x í vikunni sem leið og fór svo í dag.  Þetta er bara fínt.   

Prison Break byrjaði hér í gærkvöldi - framvegis verð ég upptekin á sunnudagskvöldum kl.20.  Hvenær byrjar önnur sería á Íslandi ????


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan
RSS tengill
Leiktu Þér
ÁhugaVerðar Síður
Dagsetning
23. febrúar 2012